Hugmyndin að góðum vínkaupum er sprottin upp í einhverri af mörgum ferðum í ÁTVR að leita að góðum bjór og góðu víni til að kaupa. Þá fór ég að skoða möguleikann á því að búa til gagnasett sem stillir upp vörum eftir einkunn svo ég gæti á snöggan hátt fundið vín eða bjór sem mig langaði að smakka. Mér fannst þetta svo gagnlegt að ég þurfti að setja upp síðu og vona að þetta geti líka gagnast þér.
Vínin eru skröpuð frá ÁTVR og Sante og þau sem eru ekki á 750ml flöskum eru síuð út, svo öll vín séu samanburðarhæf. Síðan skrifaði ég kóða sem leitar hjá Vivino og reynir að finna rétt vín og tekur niður einkunn þess. Það getur stundum klikkað en flest vín eru þó rétt pöruð og hef ég handvirkt lagað það ef ég tek eftir að svo er ekki. Það má endilega senda mér skilaboð ef e-ð er ekki rétt parað.
Bjórarnir eru skrapaðir frá ÁTVR eins og vínin en hér er ekki enn búið að bæta við fleiri söluaðilum. Hér er einnig kóðabútur sem leitar hjá untappd en hér er það enn meira mál en með vínin því vínbúðin bætir oft við tegund bjórsins og öðrum óþarfa í nafnið á bjórnum sem untappd þekkir ekki. Það þarf því að klippa strenginn til við leit og það getur endað á rangri pörun.